Sjálfvirkni og ferlalausnir

Advania hjálpar fyrirtækjum að einfalda ferla, tengja saman kerfi og nýta gervigreind til að bæta rekstur og þjónustu. Lausnir okkar byggja á áralangri reynslu í samþættingum og sjálfvirkni, auk þeirrar sérþekkingar sem hefur bæst við með Evolv, sem nú er hluti af Advania.
SJÁLFVIRKNI ER STÓR ÞÁTTUR Í STAFRÆNNI UMBREYTINGU

Sjálfvirkni sem skilar raunverulegum árangri

Fyrirtæki í dag þurfa að geta unnið hraðar, með minni handavinnu og betri yfirsýn yfir gögn og ferla. Með réttum sjálfvirknilausnum má draga úr villum, stytta afgreiðslutíma og skapa meira svigrúm fyrir starfsfólk til að sinna verðmætari verkefnum. Við hjálpum fyrirtækjum að:

Sjálfvirknivæða ferla

Tengja saman kerfi og gögn

Bæta upplifun starfsfólks og viðskiptavina

Styðja við stafræna umbreytingu

Nýta gervigreind í daglegum rekstri

FRAMTÍÐIN er fólgin Í sjálfvirkni

Vel valdar sjálfvirkni- og ferlalausnir sem styðja við nútíma rekstur

Power Platform

Smíði ferla, öpp og sjálfvirkni með lausnum frá Microsoft.

Copilot Studio og AI lausnir

Snjallir aðstoðarmenn og gervigreindarlausnir sem styðja við þjónustu og innri ferla.

Samþættingar og sjálfvirkni

Tenging milli kerfa, sjálfvirkur gagnaflutningur og örugg miðlun upplýsinga.

API og integration management

Stýring, vöktun og þróun API umhverfa fyrir nútíma upplýsingakerfi.

Ferlahönnun og ráðgjöf

Greining og hönnun skilvirkari verkferla með áherslu á sjálfvirkni og einfaldari rekstur.

Sérþekking styrkt með Evolv

Með kaupum á Evolv hefur Advania styrkt stöðu sína enn frekar á sviði sjálfvirkni, ferlalausna og gervigreindar. Evolv hefur á undanförnum árum skapað sér sterka stöðu á íslenskum markaði með framsæknum lausnum sem hafa hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að hraða stafrænni umbreytingu og nýta sér tæknina til að einfalda daglegan rekstur.

Lausnir og aðferðafræði Evolv hafa þegar sannað gildi sitt hjá fjölmörgum viðskiptavinum og styrkja nú enn frekar getu Advania til að veita heildstæða þjónustu á sviði sjálfvirkni og gervigreindar, bæði á Íslandi og gagnvart viðskiptavinum Advania víðsvegar um Evrópu.

Sjá nánar
Tækni og vettvangur

Lausnir frá leiðandi framleiðendum

webMethods

webMethods frá Software AG er leiðandi lausn á sviði samþættinga og sjálfvirkni sem mörg af stærstu fyrirtækjum landsins nýta í sínum rekstri.

Mulesoft

MuleSoft, sem er hluti af Salesforce, er öflugur vettvangur fyrir samþættingar og API stýringu sem styður við hraðari stafræna þróun. Advania er endursöluaðili á Íslandi.

Microsoft Azure

Azure Integration Services frá Microsoft er samsafn þjónusta fyrir samþættingar, sjálfvirkni og örugga miðlun gagna milli kerfa.

API Management

Við vinnum með lausnir frá meðal annars Microsoft, Software AG og MuleSoft til að tryggja örugga og skilvirka stýringu API umhverfa.
Viltu vita meira?

Spjöllum saman

Viltu skoða hvernig sjálfvirkni og betri ferlar geta stutt við þinn rekstur?