Hvar á þitt fyrirtæki að byrja?
Það getur verið erfitt að greina á milli þess sem gervigreind getur gert og þess sem skapar raunverulegt virði fyrir fyrirtækið. Stjórnendur þurfa að forgangsraða tækifærum, meta áhættuna og tryggja að starfsfólk hafi þekkingu og færni til að nýta tæknina. Við hjálpum ykkur að svara lykilspurningunum:
Hvar liggja tækifærin hjá okkur?
Greinum hvar gervigreindin getur bætt reksturinn, einfaldað ferla og skapað ný viðskiptatækifæri.
Hvernig tryggjum við ávinning?
Forgangsröðum verkefnum út frá virði, hagkvæmni og raunhæfum innleiðingarmöguleikum.
Hvernig nýtum við tæknina af ábyrgð?
Mótum umgjörð um öryggi, stjórnarhætti og reglufylgni.
Hvernig komum við starfsfólkinu af stað?
Byggjum upp gervigreindarlæsi og færni til að nýta tæknina í daglegum störfum.
Hvernig komum við lausnunum í rekstur?
Tengjum saman stefnu, tæknilega útfærslu og innleiðingu svo tækifærin skili raunverulegum árangri.